Varðskip færði sig lengra frá Grindavík af öryggisástæðum
Skjálftar síðustu klukkustundir eru komnir út í haf rétt suðvestur af Grindavík, skammt undan landi við kirkjugarðinn og fiskeldisstöðina á Stað. Skjálftaupptökin sjást vel á meðfylgjandi korti sem sýnir jarðskjálfta síðustu sex klukkustundir.
Ef gýs í sjó getur orðið sprengigos og vegna þess hefur varðskipið Þór, sem kom að Grindavík í nótt, verið beðið um að halda sig utar og lengra frá landi af öryggisástæðum.
Stöðufundur almannavarna með vísindamönnum hefst kl. 09:30.