Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Varð stjórnlaus í aðflugi að Keflavíkurflugvelli
Föstudagur 21. ágúst 2015 kl. 11:51

Varð stjórnlaus í aðflugi að Keflavíkurflugvelli

Þann 26. febrúar 2013 var Boeing 757-200 í áætlunarflugi á vegum Icelandair á leið frá Kaupmannahafnarflugvelli til Keflavíkurflugvallar með 171 manns um borð. Á lokastefnu fyrir flugbraut 20 á Keflavíkurflugvelli, skömmu fyrir áætlaða lendingu, valt flugvélin á vinstri væng og beygði stjórnlaust til vinstri. Flugmenn flugvélarinnar reyndu að að leiðrétta stefnu flugvélarinnar og höfðu ekki fulla stjórn á flugvélinni um tíma. Þetta kemur fram í frétt á vef Rannsóknarnefndar samgönguslysa.

Í ljós kom að flugvélin hafði misst vökvaþrýsting í hægra vökvaþrýstikerfi um það leyti þegar flugvélin var að hefja lækkun inn til Keflavíkurflugvallar. Við það hafði undirliggjandi bilun sem í kjölfarið fannst í lyftispilli númer 6 á vinstri væng orðið virk þegar vængbörð flugvélarinnar voru sett að fullu niður fyrir lendingu. Bilunin í lyftispillinum var rakin til hönnunargalla er orsakaði sprungumyndun í kjölfar málmþreytu í íhlut í lyftispillinum.

Rannsóknarnefnd samgönguslysa gefur út fimm tillögur í öryggisátt í skýrslunni. Er einni tillögunni beint til framleiðanda lyftispillisins (Moog), tveimur tillögum til framleiðanda flugvélarinnar (Boeing) og tveimur tillögunum til bandarísku flugmálastjórnarinnar (FAA). Skýrslan er skrifuð á ensku þar sem að þeir aðilar sem tillögum í öryggisátt er beint til eru ekki íslenskir.

Hér má lesa skýrsluna.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024