Varað við miklu óveðri
Veðurstofan hefur gefið út viðvörun vegna storms sem búist er við að gangi yfir land allt í nótt. Einnig er spáð miklu hvassviðri sunnanlands á morgun og fylgja því miklar vindkviður.
Eins og alþjóð veit gekk slæmt veður yfir landið sl. sunnudag og olli miklum usla. Þrátt fyrir að varúðarráðstöfunum hafi verið haldið mjög á lofti áður en veðrið gekk yfir var mikið um útköll björgunarsveita vegna foks, ekki síst í kringum nýbyggingar. Með réttum ráðstöfunum hefði verið hægt að koma í veg fyrir hluta þess tjóns og þeirra óþæginda er almenningur varð fyrir. Af því tilefni vill Slysavarnafélagið Landsbjörg brýna fyrir fólki að gera viðeigandi ráðstafanir áður en væntanlegur stormur gengur yfir.
Sem fyrr verða björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar í viðbragðsstöðu meðan veðrið gengur yfir. Þurfi fólk á aðstoð þeirra að halda má hringja í Neyðarlínuna – 112 eftir hjálp.
Hér að neðan má finna góð ráð fyrir almenning varðandi undirbúning fyrir óveður. Aldrei er góð vísa of oft kveðin.
Varúðarráðstafanir í óveðri
Þegar sterkur vindur gengur yfir skapast mesta hættan þegar lausir hlutir fjúka. Því er mikilvægt gæta þess að festa þá vel og tryggilega eða koma þeim fyrir innandyra.
Við flest íbúðarhús er um að ræða hluti í garði og á svölum, svo sem garðhúsgögn, grill, hitara og trampólín. Fari þessir hlutir af stað er hætta á að þeir lendi á rúðum og brjóti þær eða skemmi bifreiðar.
Fullvissið ykkur öllum gluggum og dyrum sé vel lokað. Brotni rúða skal heimilisfólk yfirgefa herbergið, loka dyrum og hringja eftir aðstoð björgunarsveita í síma Neyðarlínunnar -112.
Gangið úr skugga um að þakplötur séu tryggilega festar, einnig þakrennur, grindverk og annað. Húsbyggendur ættu að sýna sérstaka varkárni í þeim efnum.
Tryggið að hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagnar og dráttarkerrur séu í skjóli við ríkjandi vindátt og að kyrfilega sé gengið frá þeim.
Dveljið innandyra meðan veðrið geysar og fylgist með verðurfréttum og tilkynningum í fjölmiðlum.
Séu varúðarráðstafanir gerðar aukast líkur á að þessi djúpa haustlægð fari yfir landið án þess að skapa teljandi vandkvæði.