Varað við hættulegum sprengjum á ógirtu svæði
Sett hafa verið upp skilti meðfram Hafnaveginum sem vara við hættulegum virkum sprengjum á ógirtu svæði í heiðinni. Skiltin eru á íslensku og ensku og þau banna aðgang að svæðinu sem sé varnarsvæði. Þá segir að á svæðinu leynist hættulegar virkar sprengjur og unnið sé að hreinsun svæðisins. Þá segir að alls ekki megi snerta hluti sem kunni að finnast á svæðiun, heldur merkja staðinn og tilkynna þegar í stað. Gefin eru upp símanúmer lögreglunnar, 112, Landhelgisgæslunnar, 511 3333 og hjá NAS Security, 425 2211