Fréttir

Vara við hættulegum rafmagnskössum í Grindavík
Föstudagur 1. mars 2024 kl. 15:44

Vara við hættulegum rafmagnskössum í Grindavík

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum biður íbúa í Grindavík og þá sem eru við vinnu þar að fara varlega í kringum rafmagnskassa sem standa oft við gangstéttir og við lóðir húsa, þar sem mögulega getur verið útleiðsla í kassanum út af aflögun á jörðu við rafmagnskassann.

Einnig þarf að fara sérstaklega varlega þar sem holur eða skurðir sem rafmagnsstrengir liggja í og geta verið óvarðir og því hættulegir.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024