Vara við böðum í affalli Reykjanesvirkjunar
Nokkuð hefur borið á því uppá síðkastið að fólk sé að baða sig í affalli Reykjanesvirkjunar. Þetta athæfi er bæði stranglega bannað og stórhættulegt eins og kemur fram á þeim merkingum sem eru á staðnum. Þetta kemur fram á vef HS Orku.
„Vatnið sem kemur úr affallinu er alla jafna um 35 gráðu heitt en það er þó stórhættulegt að baða sig í affallinu þar sem að hitinn getur skyndilega aukist í allt að 100 gráður ef að aðstæður í orkuverinu breytast. Ef það myndi gerast er ljóst að afleiðingarnar gætu orðið skelfilegar.
Þá er mjög straumhart í sjónum þarna og mikil hætta á því að þeir sem lenda í straumnum sogist langt frá landi mjög skyndilega og geti sér engar bjargir veitt,“ segir í tilkynningunni.
HS Orka vill því ítreka við alla að það er stranglega bannað að fara ofan í sjóinn við affallið.
„Þetta er ekki náttúrulaug eins og hefur verið haldið fram á samfélagsmiðlum heldur affall frá orkuveri sem getur verið mjög breytilegt eftir aðstæðum,“ segir á vef HS Orku.
Á svæðinu eru fyrir merkingar á tveimur stöðum en í ljósi framangreinds mun HS Orka auka merkingar til að öllum sem þarna fara um sé ljóst að þarna sé stórhætta á ferð.