Bygg
Bygg

Fréttir

Fimmtudagur 23. mars 2000 kl. 08:00

Vantar heilu árgangana

Slæmt tíðafar í vetur hefur ekki farið fram hjá nokkrum manni. Þegar litið er til sjávar í vitlausum veðrum, verður manni óhjákvæmilega hugsað til allra sjómannanna sem þar eru að störfum. Oddur Sæmundsson, skipstjóri á Stafnesi KE er gamalreyndur sjóhundur. Hann segir tíðafarið ekki hafa verið svona erfitt í mörg ár og að nú sé miklu minna af stórum fiski heldur um miðjan síðasta áratug. „Það virðist vanta einhverja árganga, sennilega frá ´90 og ´91.Stafnesið hefur aðallega verið að veiða þorsk og landað á Hornafirði síðan um miðjan febrúar á þessu ári. Fiskurinn er síðan keyrður suður í Garð, þar sem unnið er úr honum hjá Fiskþurrkun. „Veiðin hefur gengið þokkalega í vetur. Síðan um áramót erum við búnir að fá um 600 tonn, sem er allt í lagi þegar hið erfiða tíðafar er haft í huga. Vegna veðurs hafa veiðafærin farið mjög illa“, segir Oddur. Hann segir að verð á fiski hafi haldist ágætt, nema á ufsa en verð á honum hefur fallið um helming á einu og hálfu ári. Oddur segir að nú sé miklu minna af stórum fiski heldur um miðjan síðasta áratug. „Það virðist vanta einhverja árganga, sennilega frá ´90 og ´91. Fiskifræðingar voru reyndar búnir að segja að við mættum búast við þessu, en við áttum bágt með að trúa því, því að fiskeríið var svo gott, fyrir 3-5 árum. Þeir sögðu að klakið hjá þessum árgöngum hefði misheppnast. Nú hefur komið í ljós að þeir höfðu rétt fyrir sér. Útlitið hjá okkur er þó ekki slæmt því víða verður vart við smáfisk“, segir Oddur og er glaðbeittur að vanda. Stafnesið á eftir að veiða um 450 tonn af þorski og Oddur segist vona að þeir verði búnir um miðjan maí. „Þá er bara að bíða eftir nýju fiskveiðiári sem hefst 1. september. Því miður er bara ekki meira til skiptanna en þetta. Það eiga sumir erfitt með að skilja“, segir Oddur.
Bílakjarninn
Bílakjarninn