Valþór GK losnaði frá bryggju
Fiskiskipið Valþór GK losnaði frá bryggju í Keflavík í óveðrinu í kvöld. Báturinn var alveg laus að aftan en spottarnir að framan héldu enn þegar björgunarlið kom á staðinn.
Mönnum tókst að komast um borð í bátinn og koma honum aftur að bryggju og tryggja festar svo ekki færi verr.
Myndina tók Hilmar Bragi á vettvangi nú í kvöld.