Vallarheiði heitir nú Ásbrú
Þróunarsvæði Kadeco, gamla varnarstöð bandaríkjahers, heitir nú Ásbrú.
Þetta nýja nafn er valið til þess að skapa nafn um þá miklu uppbyggingu sem hefur átt sér stað undanfarin tvö ár frá því Bandaríkjaher yfirgaf varnarstöð sína.
Mörg nöfn hafa verið notuð yfir svæðið, þar á meðal Völlurinn, Varnarsvæðið, Nató svæðið, Herstöðin, Keilissvæðið og Vallarheiði. Skapaði þetta brýna þörf á því að skapa eitt sameinandi nafn sem gerði þeim fjöldamörgu kraftmiklu aðilum sem starfa hér að uppbyggingu kleift að kenna sig við.
Nafnið Ásbrú kemur úr goðafræði og táknar brúnna á milli goðheima og mannheima. Nafnið var valið eftir mikla vinnu með auglýsingastofunni Gott Fólk og tók fjöldi hagsmunaðila þátt í vinnunni, þar á meðal var öllum sveitafélögum á Reykjanesi boðið að taka þátt.
Nafnið Ásbrú verður betur kynnt á komandi vikum auk þess sem það verður opinn dagur í Ásbrú þar sem aðilar á svæðinu munu kynna starfsemi sína.
