Valin á eina stærstu myndlistasýningu í Evrópu
Myndlistamaðurinn Guðmundur R Lúðvíksson úr Reykjanesbæ hefur verið valinn einn af 187 myndlistarmönnum af 2.458 listamönnum sem kynntu verkin sýn fyrir sérstakri dómnefnd, á sýninguna NordArt 2013 í Carlshütte í Þýskalandi.
Sýningin er gríðarlega stór og umfangsmikil en hún fer fram í 120.000 fermetra svæði bæði utandyra sem og í mörgum risastórum skálum.
Sýning þessi hefur verðið haldin um nokkurra ára skeið og hana sækja hundruð þúsunda gesta.
Verkn sem Guðmundur R verður með eru samtals 12 talsins og mynda eina heild.
Stærð verksins er um 7 metrar á lengd og 3 metrar á hæð.
Verkin sýna spegilmynd af landi en eru tólf sem er tilvísun í postulana, en áhorfandinn verður þrettánda elimentið í verkinu. Einnig verður stór bakki með vatni og einum Gullfisk fyrir framan verkið.
Guðmundur er eini Íslendingurinn sem var valinn á þessa sýningu en þess má geta að starfandi listamenn frá Kína, Bandaríkjunum, Hollandi, Þýskalandi, Noregi, Danmörk, Serbíu, Rússlandi, Spáni, Suður Kóreu, Póllandi, Tyrklandi, Ukraniu, Svíþjóð, Möltu, Mexikó, Japan, Rúmeníu, Canada, Kólibíu, Bretlandi, Ísrael, Frakklandi, Mongólíu, Malasíu, Belgíu, Íralndi, Indónesíu, Suður Afríku og fleiri löndum taka þátt í þessari miklu sýningu.
Án efa mun þátttaka Guðmundar R í þessari sýningu opna gáttir fyrir hann sem starfandi myndlistarmanns um allan heim.
Lesa má allt um þessa sýningu á slóðinni: http://www.kunstwerk-carlshuette.de/
Þess má geta að á heimasíðunni er hægt að skoða allt svæðið í svokölluðu Vitural Tur, en þar er hægt að fara inn í öll svæðin eins og um raunveruleika væri að ræða.
Slóðin þangað er : http://www.kunstwerk-carlshuette.de/rundgang_2012/ger/