Valgerður Björk leiðir lista Beinnar leiðar í Reykjanesbæ
Valgerður Björk Pálsdóttir doktorsnemi í stjórnmálafræði leiðir lista Beinnar leiðar í sveitarstjórnarkosningum í Reykjanesbæ í vor. Í öðru sæti er Helga María Finnbjörnsdóttir viðskiptafræðingur og mannauðsráðgjafi hjá Isavia og í þriðja sæti er Birgir Már Bragason málari og atvinnurekandi. Bein leið er óflokksbundið bæjarmálafélag sem hefur verið þátttakandi í meirihlutasamstarfi í Reykjanesbæ undanfarin tvö kjörtímabil.
Framboðslisti Beinnar leiðar 2022:
1. Valgerður Björk Pálsdóttir, 35 ára, doktorsnemi í stjórnmálafræði og kennari við HÍ.
2. Helga María Finnbjörnsdóttir, 41 árs, viðskiptafræðingur og mannauðsráðgjafi hjá Isavia.
3. Birgir Már Bragason, 49 ára, málari og atvinnurekandi.
4. Halldór Rósmundur Guðjónsson, 55 ára, lögfræðingur.
5. Sigrún Gyða Matthíasdóttir, 34 ára, leikskólastjóri Akurs.
6. Davíð Már Gunnarsson, 33 ára, forstöðumaður Fjörheima og 88 hússins.
7. Kristján Jóhannsson, 54 ára, leiðsögumaður.
8. Þuríður Birna Björnsdóttir Debes, 23 ára, háskólanemi í uppeldis- og menntunarfræði.
9. Jóhann Gunnar Sigmarsson, 41 árs, grunnskólakennari í Njarðvíkurskóla.
10. Rannveig L. Garðarsdóttir, 65 ára, bókavörður í Bókasafni Reykjanesbæjar.
11. Þórarinn Darri Ólafsson, 19 ára, nemi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
12. Harpa Jóhannsdóttir, 34 ára, tónlistarkennari í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
13. Davíð Örn Óskarsson, 36 ára, markaðsstjóri Blue Car Rental.
14. Justyna Wróblewska, 32 ára, deildarstjóri í leikskóla og BA í sálfræði.
15. Hannes Friðriksson, 64 ára, innanhúsarkitekt.
16. Eygló Nanna Antonsdóttir, 18 ára, nemi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
17. Sólmundur Friðriksson, 54 ára, verkefnastjóri hjá Keili.
18. Aleksandra Klara Wasilewska, 26 ára, þjónustufulltrúi í Ráðhúsi Reykjanesbæjar.
19. Hrafn Ásgeirsson, 66 ára, lögreglumaður .
20. Freydís Kneif Kolbeinsdóttir, 49 ára, grunnskólakennari í Gerðaskóla.
21. Kolbrún Jóna Pétursdóttir, 54 ára, lögfræðingur hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
22. Guðbrandur Einarsson, 64 ára, alþingismaður.