Safnahelgi
Safnahelgi

Fréttir

Valdimar söngvari ársins
Valdimar Guðmundsson.
Föstudagur 20. febrúar 2015 kl. 22:30

Valdimar söngvari ársins

Íslensku tónlistarverðlaunin fóru fram í kvöld.

Valdimar Guðmundsson var kjörinn söngvari ársins í popp og rokktónlist á Íslensku tónlistarverðlaununum sem fram fóru í Silfurbergi í Hörpu í kvöld. Bein útsending var frá hátíðinni á RÚV. Valdimar var stuttorður en gagnorður þegar hann tók við verðlaununum og sagði: „Ég vil bara þakka öllum. Þið vitið hver þið eruð.“

Hljómsveitin Valdimar var með þrjár tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir árið 2014. Hljómsveitin var tilnefnd fyrir plötu ársins í flokknum popp, fyrir plötuna Batnar útsýnið. Valdimar Guðmundsson söngvari var tilnefndur sem söngvari ársins, en hann og Ásgeir Aðalsteinsson voru einnig tilnefndir sem textahöfundar ársins.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

ATP-hátíðin var tilnefnd sem einn af tónlistarviðburðum ársins 2014 en hlaut ekki verðlaun að þessu sinni.

Þegar fulltrúi Skálmaldar tók við verðlaunum sem tónlistarflytjandi ársins í rokktónlist, vitnaði hann í Rúnna Júl okkar Suðurnesjamanna og sagði: „Þetta er allt saman rokk'n'roll.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn