Valdimar GK dreginn í land á Norðfirði
Seint á sunnudagskvöld óskaði áhöfn Valdimars GK sem var á veiðum út af Norðfjarðarhorni eftir aðstoð vegna bilunar í skrúfubúnaði. Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar var kölluð út um hálf eitt og hélt Hafbjörg úr höfn um eitt leitið.
Þegar Hafbjörgin var komin að skipinu var farið í að koma taug á milli og klukkans þrjú í nótt lagði Hafbjörg af stað til lands með skipið í togi.
Ferðin hefur gengið nokkuð vel og eru skipin nú komin inn á Norðfjörð og eiga stutt að bryggju í Neskaupstað.