Fréttir

Valdi og Skafti sigruðu í Aðalskoðunarralli AÍFS
Þriðjudagur 9. júní 2015 kl. 08:17

Valdi og Skafti sigruðu í Aðalskoðunarralli AÍFS

Valdi og Skafti gerðu sér lítið fyrir og óku frá Grindavík til Hafnarfjarðar á nýju meti, 13 mín og 33 sek og sigruðu þar með í Aðalskoðunarralli AÍ, sem haldið var um helgina í fínu veðri. 

Ekið var um höfnina á föstudagskvöldið og var margt fólk sem kom til að sjá bílana aka þar. Á laugardeginum var haldið að Djúpavatni en það er með einni af skemmtilegri rallýleiðum sem eknar eru og voru teknar þar þrjár umferðir.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Henning og Árni lentu í vandræðum við Djúpavatn þegar túrbína gaf sig aðra leiðina en félagarnir komust út af og náðu að skipta um túrbínu. Þeir komu þó of seint inn á tímastöð og hlutu refsingu fyrir og enduðu í 5. sæti yfir heildina.

Sigurður og Magnús frá Aífs óku saman í fyrsta sinn og náðu þeir góðum tímum miðað við fyrstu keppni saman og enduðu í 7. sæti.  

Ragnar og Almar komu líka skemmtilega á óvart en þeirra markmið var að klára, sem þeir gerðu og enduðu í 9. sæti. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn