Vafasamir menn bjóða fram þjónustu - lögregla leitar mannanna
Bjóðast til að mála eða taka garðinn í gegn
Nokkuð hefur borið á því að erlendir menn banki upp á í heimahúsum víða í Reykjanesbæ um þessar mundir og bjóði fram þjónustu sína gegn gjaldi sem jafnan er í hærra lagi. Þeir hafa þann háttinn á að þeir banka upp á hjá fólki og bjóða fram ýmsa þjónustu, þá sérstaklega er við kemur viðhaldi á fasteignum. Þeir eru enskumælandi og segjast gjarnan starfa fyrir kanadískt fyrirtæki.
Margar tilkynningar hafa borist lögreglu sem leitar nú mannanna en grunur liggur á að þarna séu svikahrappar á ferð. Samkvæmt íbúum í Reykjanesbæ sem hafa fengið mennina í heimsókn eru þeir á rauðum sendibíl og oft klæðast þeir gulum vestum.
Lögregla sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu vegna málsins: Síðastliðna daga hafa nokkrar tilkynningar komið inná borð lögreglu um erlenda menn sem eru að banka uppá hjá fólki og bjóða þjónustu sína gegn gjaldi. Þeir eru ýmist að bjóðast til að mála húsþök, laga innkeyrslur og ýmislegt fleira. Ef þið verðið vör við þetta þá er mikilvægt að afþakka þjónustuna. Því miður höfum við ekki náð að finna þessa menn en óskum eftir að fá tilkynningu frá ykkur verði þið vör við þá.