Vætusamt í dag

Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Suðlæg átt, 5-10 m/s og súld af og til, en víða 10-15 í kvöld og talsverð rigning. Suðvestlægari og skúrir nálægt miðnætti. Hiti 10 til 15 stig.
Af vef Veðurstofunnar. Kortið sýnir veðrið síðdegis í dag.