Miðvikudagur 17. ágúst 2005 kl. 09:24
Væta með köflum

Klukkan 6 var austanátt á nyrstu annesjum en annars sunnan 3-8. Skýjað með köflum á Norðaustur- og Austurlandi en annars skýjað og súld hér og þar. Hiti 7 til 13 stig, hlýjast á Nautabúi í Skagafirði.
Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Sunnan- og suðaustan 3-8 m/s, og dálítil væta með köflum. Hiti 10 til 15 stig.
Af vef Veðurstofunnar. Kortið sýnir veðrið síðdegis í dag.