Væta í kortunum
Sunnan og síðar suðvestan 8-13 m/s og rigning eða súld, en skúrir síðdegis. Vestan 10-15 í nótt og skýjað, en norðlægari á morgun. Hiti 1 til 6 stig, en frost 0 til 4 stig á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag (föstudagurinn langi):
Norðvestlæg átt, 8-13 m/s og dálítil él norðaustanlands, en annars mun hægara og víða léttskýjað. Frostlaust með suður- og vesturströndinni, en frost annars 0 til 5 stig.
Á laugardag:
Norðvestlæg átt, víða 8-13 m/s og súld eða slydda um vestanvert landið, él norðanlands, en annars úrkomulítið. Hiti víða 0 til 5 stig, en vægt frost norðaustan til.
Á sunnudag (páskadagur):
Hæg vestlæg eða breytileg átt og dálítil súld eða slydda með köflum sunnan- og vestanlands, en annars léttskýjað. Heldur kólnandi veður.
Á mánudag (annar í páskum) og þriðjudag:
Norðlæg átt með éljum og talsverðu frosti.