Fimmtudagur 30. ágúst 2001 kl. 15:26
Útvegsmenn á Suðurnesjum mótmæla

Útvegsmannafélag Suðurnesja, mótmælir harðlega þeirri ákvörðun sjávarútvegsráðherra að svifta útgerðir aflamarksbáta aflahlutdeild í ýsu, steinbít og ufsa, og færa útgerðum krókabáta.Þessi tilflutningur frá aflamarksskipum á Suðurnesjum í ofangreindum tegundum er um 600 tonn, og er ekki bætandi á allar þær veiðiheimildir í þorski, sem hafa farið sömu leið undanfarin ár.
Suðurnes eiga mjög undir högg að sækja í fiskveiðum, og hafa misst gífurlegar aflahlutdeildir frá sér. Útgerð aflamarksskipa á Suðurnesjum má því ekki við frekari geðþóttaskerðingum stjórnvalda, en orðið er.