Útsvarstekjur hafa hækkað hlutfallslega mest í Reykjanesbæ
Frá árinu 2013 hafa útsvarstekjur Reykjanesbæjar hækkað um 71,5% en þetta er mesta aukning útsvars á landinu. Til samanburðar þá hafa útsvarstekjur Grindavíkurbæjar hækkað um 38,2% frá 2013 og 4,3% frá 2016. Útsvarstekjur Reykjanesbæjar hafa hækkað um 19,8% frá 2016 og er það einnig mesta aukning útsvars sveitarfélags á landinu. Þetta kemur fram í nýjum tölum Sambands íslenskra sveitarfélaga um staðgreiðslu útsvars árin 2016 og 2017 en fjallað var um málið í Morgunblaðinu.
Aukinn íbúafjöldi í Reykjanesbæ endurspeglar þessa aukningu útsvarsins en útsvarstekjur skiluðu 8,4 milljörðum króna í fyrra eða 71,5% meira en 2016 og 19,8% meira en 2013. Þetta er mesta aukning milli tímabila í báðum tilvikum.
Sigmundur Á. Snævarr, sviðsstjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga segir í samtali við Morgunblaðið að aukning hjá sveitarfélögum milli áranna 2016 og 2017 vera í takt við hækkandi laun í landinu. Þá skilaði útsvar allra sveitarfélaga 10,5% meiri tekjum árið 2017 en 2016.
Grunnrekstur Reykjanesbæjar hefur aldrei verið betri en á síðasta ári sagði, Kjartan Már Kjartanson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, í Víkurfréttum í síðustu viku en farið var í ýmsar endurskipulagningar sem eru að skila góðum grunnrekstri í sveitarfélaginu. Aukinn fjöldi bæjarbúa þýðir einnig auknar tekjur til bæjarfélagsins en innviðir hafa verið vel nýttir og framundan eru ýmis kostnaðarsöm verkefni í bæjarfélaginu svo sem bygging nýs skóla í Innri Njarðvík og ýmsar fjárfestingar.