Útsvar og skólagjöld hækka ekki í Garði
Útsvarsprósentan í Garði mun haldast óbreytt frá fyrra ári eða 13,03% og ekki verður nýttur réttur til að hækka prósentuna. . Einnig er gert ráð fyrir að hlutfall fasteignaskatts af fasteignamati verði óbreytt frá fyrra ári. Þá munu skólagjöld, hvort sem um er að ræða tónlistarskólagjöld, leikskólagjöld eða gjöld fyrir skóladagvistun, ekki hækka þriðja árið í röð. Þetta var samþykkt af meirihlutanum í Garði á bæjarstjórnarfundi sl. miðvikudag.
Í greinargerð meirihlutans segir að við mat á þessari tillögu er rétt að hafa til hliðsjónar að vísitala neysluverðs hefur á undanförnum þremur árum hækkað um rúm 33% þannig að í þeirri ákvörðun að hækka ekki skólagjöld felst veruleg kjarabót fyrir foreldra ungra barna. Hádegismatur grunnskólabarna verður niðurgreiddur um 52% af útseldu verði eins og áður. Í leikskólanum er systkinaafsláttur óbreyttur og einnig afsláttur fyrir börn einstæðra foreldra og gjaldfrjálsar eru 4 klst. á dag fyrir leikskólabörn á seinasta leikskólaári.