Útsláttur í tengivirki olli rafmagnsleysi
Ekki hefur enn fundist endanleg ástæða þess að rafmagn fór af öllum Reykjanesskaganum í 17 mínútur í gær. Egill Sigmundsson, forstöðumaður rafmagnsdeildar Hitaveitu Suðurnesja, sagði í samtali við Víkurfréttir að útsláttur í Hamranesi hafi ollið rafmagnsleysinu og það tengdist líklega vinnu við liðavernd.
Við útsláttinn í Hamranesi sló út í vélum í Reykjanesvirkjun með þeim afleiðingum að rör gaf sig og flæddu þúsundir lítrar af heitum sjó inn í kjallara virkjunarinnar. Slökkvilið BS var kallað út og dældi vatninu upp úr kjallaranum.
Engar alvarlegar skemmdir urðu, en tjónið lá að mestu í því að önnur vélin í virkjuninni stöðvaðist. Hin vélin, sem var ekki í gangi sökum reglubundins viðhalds, var keyrð upp í gærkvöldi og nótt.
Varaaflstöðvar fóru í gang á Keflavíkurflugvelli þannig að rafmagnsleysið hafði engin áhrif þar.
VF-myndir/Þorgils