Bygg
Bygg

Fréttir

Útskriftarnemar FS gróðursetja við Rósaselsvötn
Mánudagur 16. september 2002 kl. 08:21

Útskriftarnemar FS gróðursetja við Rósaselsvötn

Útskriftarnemendur Fjölbrautaskóla Suðurnesja fjölmenntu að Rósaselstjörnum fyrir helgi til gróðursetningar. Það er að verða árlegur viðburður að útskriftarhópurinn komi þar saman og setji niður eina plöntu fyrir hvern nemanda sem útskrifast frá skólanum.Að þessu sinni voru settar niður 50 trjáplöntur í haustlitum með tilheyrandi skít. Nutu nemendur aðstoðar kennara sinna, enda þeir farið nokkrar ferðir á svæðið með áhugasama nemendur. Í framtíðinni er vonast til að þessir sömu nemendur geti farið í lautarferð með barnabörnin þegar umhverfi Rósaselsvatna verður orðið skógi vaxið. Meðfylgjandi mynd var tekni við þetta tækifæri.
Bílakjarninn
Bílakjarninn