Fimmtudagur 27. febrúar 2003 kl. 15:15
Útskriftarhópur FS í fjársöfnun

Útskriftarhópur Fjölbrautaskóla Suðurnesja hefur ákveðið að bjóða fram aðstoð sína til nemenda í 10. bekk grunnskóla á Suðurnesjum og aðstoða við heimanám fyrir samræmdu prófin. Sigríður Kristín og Þórunn Katla eru í útskriftarhópnum og segja þær að hópurinn hafi ákveðið þetta til að safna fyrir útskriftarferðinni og leggja sitt af mörkum til að hækka meðaleinkunn samræmdu prófanna á Suðurnesjum. Hópurinn fer í útskriftarferð til Majorka 26. maí nk. Sigríður og Þórunn segja að hópurinn noti margar aðferðir til að afla peninga til ferðarinnar og er þetta ein af þeim, en hópurinn býður einnig fram þjónustu sína við framreiðslu í fermingarveislum og öðrum veislum. Þeir sem hafa áhuga á að nýta sér þessa aðstoð og þjónustu eru bent á að hafa samband í eftirfarandi símanúmer: 421-3100, 868-9410, 421-8008 og 866-2300.