Útskálaprestur blæs til umferðarmessu
Séra Björn Sveinn Björnsson, sókarprestur að Útskálum, hefur boðað til umferðarmessu í Útskálakrikju á sunnudag kl. 11.
Messan verður með gospel-sniði og mætir stúlknakór undir stjórn Margrétar Pálmadóttur og syngur við messuna. Jóhann Kristjánsson mun segja frá lífsreynslu sinni en hann hefur verið bundinn við hjólastól í mörg ár eftir alvarlegt umferðarslys í Sandgerði.
Björn Sveinn sagðist með messunni vilja ná til ungra ökumanna á Suðurnesjum og fá þá til að mæta í messuna og hugleiða þá ábyrgð sem þeim er falin í umferðinni.
- Nánar um umferðarmessuna í Víkurfréttum á fimmutdaginn.