Útlit fyrir vætu um helgina
Búast má við vætusamri Ljósanótt samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands fyrir helgina. Á morgun þykknar upp með dálítilli rigningu. Spáð er þurru en skýjuðu veðri á föstudaginn en rigningu laugardag og sunnudag.
Veðurspá dagsins fyrir Faxaflóasvæðið gerir ráð fyrir austan 3-8 m/s og skýjuðu til hádegis, en síðar dálítilli rigningu. Hiti verður á bilinu 8 til 13 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Hæg suðlæg eða breytileg átt og dálítil væta um vestanvert landið, en annars skýjað með köflum og úrkomulítið. Vaxandi suðaustanátt SV-lands seint um kvöldið. Hiti 8 til 13 stig.
Á laugardag:
Austan- og suðaustanátt, 5-13 m/s, hvassast V-lands og rigning, en skýjað að mestu og þurrt að kalla NA-lands. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag og mánudag:
Suðlægar áttir með rigningu S- og V-lands, en skúrir annars staðar. Fremur milt veður.
Á þriðjudag:
Útlit fyrir breytilegar áttir með skúrum og kólnandi veður.
---
VFmynd/elg- Ljósanótt 2007 var blaut . Hátíðargestir klæddu sig eftir veðri og létu rigninguna ekkert á sig fá.