Útlit fyrir ágætt veður á gamlársdag
Sunnan 5-10 og þokusúld eða dálítil rigning með köflum. Snýst í norðaustan 3-8 með éljum síðdegis á morgun. Hiti 3 til 7 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag (gamlársdagur):
Austankaldi með éljum sunnanlands, en annars hægari og úrkomulítið. Dregur úr úrkomu um kvöldið. Vægt frost en víða frostlaust við suður- og vesturströndina.
Á fimmtudag (nýjársdagur):
Austlæg átt, yfirleitt á bilinu 3-10 m/s. Stöku él á Suðurlandi, annars víða bjart. Frost 1 til 7 stig, en frostlaust syðst.
Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Yfirleitt hægur vindur og víða dálítil él. Heldur kólnandi veður.