Útlit fyrir að gosvirknin hafi náð jafnvægi í bili
Allt bendir til að gosvirknin á eldstöðvunum hafi náð jafnvægi og hraunrennsli sé orðið nokkuð stöðugt. Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur, segir í færslu á Facebook að jarðvísindamenn HÍ sjái merki aukins þrýstings í norðaustari hluta gangsins, nær Keili miðað við gosstöðvarnar, og einnig undir honum - og gangurinn þá í raun í tveimur hliðruðum hlutum og heldur að eflast.
Undanfarna tvo daga hefur skjálftavirkni á svæðinu nær öll verið í Keili sjálfum og þróunin bendi til aukins innflæðis í gangakerfið sem hefur undanfarið verið að myndast norðan við Meradali. Í henni felst hætta á að kvika nái yfirborði, og gossprungur opnist, á flatlendinu á milli núverandi gossprungu og Keilis – og jafnvel utan í Keilishlíðum.

Myndin sýnir hvernig útbreiðsla hraunsins var seinni partinn í gær, 11. júlí 2023. Til samanburðar eru útlínur hraunsins frá því 10. júlí 2023.
Kort: Rannsóknarstofa í eldfjallafræði og náttúruvá