Útlendur plastblómasali rændi aldraða konu í Keflavík

Maðurinn fór á eftir konunni inn í íbúð hennar og tók 5000 krónur úr veski hennar og hljóp síðan á brott. Gamla konan gat ekki gefið lýsingu á manninum. Lögreglumenn hafa farið hús úr húsi og komist að því að maðurinn hafði víða bankað uppá og boðið blóm til sölu eða óskað eftir frjálsum fjárframlögum fyrir götubörn í Rúmeníu, að talið er.
Í einni íbúðinni fengu lögreglumenn afhendan plastblómavönd sem maðurinn hafði selt fyrir 500 krónur. Lögreglan óskar nú eftir því að ef fólk getur veitt upplýsingar um ferðir mannsins, eða gefið á honum greinargóða lýsingu sem gæti leitt til handtöku hans, hafi samband við lögregluna í Keflavík í síma 420 2400.
Mynd: Þetta er einn af plastblómavöndunum sem lögreglan í Keflavík hefur undir höndum, en maðurinn seldi þennan vönd á 500 krónur í íbúðum aldraðra við Kirkjuveg í Keflavík. Í annarri íbúð rændi blómasalinn hins vegar húsráðanda og hljóp á brott með 5000 krónur. VF/Hilmar Bragi Bárðarson