Útlendingastofnun vill nýjan þjónustusamning við Reykjanesbæ
Útlendingastofnun hefur óskað eftir að hefja viðræður við Reykjanesbæ um nýjan þjónustusamning og breytingar á samningsskilmálum vegna þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Iðunn Ingólfsdóttir, verkefnastjóri, mætti á fund velferðarráð Reykjanesbæjar í síðustu viku og gerði grein fyrir málinu. Velferðarráð hefur falið starfsmönnum velferðarsviðs að afla frekari upplýsinga um málið áður en ákvörðun verður tekin.