Úthluta byggingalóðum á miðsvæði í Vogum
	Sveitarfélagið Vogar hefur auglýst lóðir til úthlutunar fyrir íbúðabyggingar. Um er að ræða svokallað miðsvæði, síðari áfanga. Í þessum áfanga verður úthlutað lóðum undir tvö sex íbúða fjölbýlishús, fimm parhús og sjö einbýlishús. 
	Lóðirnar verða tilbúnar til afhendingar í október 2018. Umsóknarfrestur um lóðirnar er til 1. september 2018. Nánar má lesa um lóðaúthlutunina á vef Sveitarfélagsins Voga.

 
	
			

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				