Bygg
Bygg

Fréttir

Útgjöld vegna fjárhagsaðstoðar og barnaverndar tvöfaldast
Fimmtudagur 14. maí 2009 kl. 09:02

Útgjöld vegna fjárhagsaðstoðar og barnaverndar tvöfaldast


Kostnaður Reykjanesbæjar vegna fjárhagsaðstoðar og barnaverndar hefur aukist gríðarlega frá árinu 2007. Þá voru greiddar 34,8 milljónir í fjárhagsaðstoð. Þessi upphæð hækkaði í 53,3 m.kr á síðasta ári. Að óbreyttu stefnir í að bæjarsjóður greiði um 100 milljónir króna í fjárhagsaðstoð á þessu ári.

Í liðinn Barnavernd – vistun og fóstur, voru greiddar 25,3 milljónir króna árið 2007. Þessi upphæð hækkaði í 33,7 m.kr á árinu 2008.
Ef greiðslur á þessu ári verða óbreyttar má reikna með um 50 milljónum króna í þennan lið.

„Þetta er sá veruleiki sem við erum að glíma við, verðum að standa með og þurfum að fjármagna,“ sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, á íbúafundi í Akurskóla í byrjun vikunnar. Hann kom í máli sínu inn á helstu útgjaldaliði bæjarins og ítrekaði það sem bæjaryfirvöld hafa áður sagt um að verja grunnþjónustuna.

Útgjöld vegna húsaleigubóta hafa einnig aukist verulega en bærinn greiddi 80 milljónir króna vegna þeirra árið 2007. Á síðasta ári hafði þessi liður hækkað í 167,3 milljónir. Í ár stefnir þessir upphæð í 260 milljónir króna. Hlutur bæjarins í húsaleigubótum er 40% og hækkar því úr 32 milljónum í 104 milljónir.

Árni sagði bæjaryfirvöld horfa fram á verulega útgjaldaaukningu og henni yrði mætt með aðhaldi og niðurskurði. Dregið yrði úr starfsemi bæjarins um 500 milljónir frá fyrstu áætlunum m.a. með því að lækka starfshlutfall, draga úr niðurgreiðslum til Frístundaskóla og lækka umönnunargreiðslur. Þá var ákveðið að hækka gjaldaskrá tónlistarskóla og útsvar var hækkað í 13,28%.

Árni sagði ljóst að tekjur bæjarfélagsins myndu lækka. Verkefni bæjaryfirvalda væri að verja grunnþjónustuna. En hvað er átt við þegar talað er um grunnþjónustu sveitarfélagsins? VF innti Árna svars við því:

„Það er allt sem snýr að því að veita leikskóla áfram á hagstæðu verði, matarþjónustu í hádegi á lægsta verði stóru sveitarfélaganna, standa undir stórauknum greiðslum húsaleigubóta, fjárhagsaðstoðar, fóstur- og vistunarmála og tryggja nemendum grunnskóla áfram gott nám og góða þjónustu,“ svaraði Árni.


 

Bílakjarninn
Bílakjarninn