HSS
HSS

Fréttir

Útgerðin verður að deila arði af vinnslu þjóðareignarinnar
Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Miðvikudagur 8. febrúar 2017 kl. 07:30

Útgerðin verður að deila arði af vinnslu þjóðareignarinnar

- segir Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar en flokkurinn er á móti lagasetningu

„Ég hef miklar áhyggjur af sjómannaverkfallinu. Það er afar mikilvægt fyrir atvinnugreinina í heild og þjóðarbúið að deiluaðilar nái saman um ásættanlega niðurstöðu sem fyrst,“ segir Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.

Oddný segir að á flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar þann 4. febrúar hfi komið fram ríkur stuðningur við kjarabaráttu sjómanna.
„Samfylkingin lýsti einnig yfir áhyggjum af stöðu launafólks í landvinnslu vegna aðgerða aðila í Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi sem margir hverjir hafa sagt starfsmönnum upp þrátt fyrir mikinn hagnað fyrirtækjanna á liðnum árum. Útgerðin verður að deila arði af vinnslu þjóðareignarinnar með starfsfólki sínu og þjóðinni allri.
 Samfylkingin hafnar lagasetningu á verkfall sjómanna,“ sagði Oddný við Víkurfréttir.
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn