Bygg
Bygg

Fréttir

Útgerð og fiskvinnsla eflast í Reykjanesbæ verði frumvörpin að lögum
Þriðjudagur 17. apríl 2012 kl. 22:14

Útgerð og fiskvinnsla eflast í Reykjanesbæ verði frumvörpin að lögum


Töluverð umræða varð á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar í dag um nýframkomin frumvörp um fiskveiðistjórnun og veiðigjöld. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram eftirfarandi bókun:

Bílakjarninn
Bílakjarninn


„Framkomin frumvörp um stjórn fiskveiða og veiðigjöld eru mikilvægur áfangi í langþráðri kerfisbreytingu í sjávarútvegi. Kerfisbreytingu sem tryggir auðlindina sem ævarandi sameign þjóðarinnar, tryggir þjóðinni sanngjarnan arð af auðlind sinni og tryggir tækifæri til nýliðunar í greininni með virkum og vaxandi útboðsmarkaði.


Aukinn arður þjóðarinnar af auðlindinni verður m.a. nýttur til við fjárfestingar í innviðum samfélagsins, menntun, nýsköpun og rannsóknum, og við sóknaráætlanir í atvinnulífi um land allt.


Samkvæmt frumvörpunum verður heimilt að skilyrða hluta af aflaheimildum ríkisins til útleigu við ákveðin svæði sem standa veikt og/eða hafa glatað miklu af sínum heimildum. Svigrúm ríkisins til að mæta kröfum byggðarlaga, eins og Reykjanesbæjar, verður því verulega aukið.


Samkvæmt frumvörpunum fara um 20 þúsund þorskígildistonn í útleigu á kvótaþingi strax í haust og gangi spár eftir um aflaaukningu mun sá leigupottur stækka hratt. Þá munu 40% af tekjum sem fást vegna leigu á kvótaþingi renna til sveitarfélaga.


Ljóst er að samþykkt frumvarpanna yrði til þess að efla útgerð og fiskvinnslu í Reykjanesbæ og þar með atvinnu í bænum.“

Friðjón Einarsson

Guðný Kristjánsdóttir

Eysteinn Eyjólfsson