Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Útgarðurinn heillar húsbyggjendur
Lóðin við Skagabraut 28 í Garði. Þar eru Útskálar í bakgarðinum.
Þriðjudagur 27. september 2016 kl. 10:37

Útgarðurinn heillar húsbyggjendur

Áhugi fyrir húsbyggingum í Út-Garðinum er nokkur. Nú liggja fyrir skipulags- og bygginganefnd Sveitarfélagsins Garðs umsóknir um a.m.k. tvær lóðir við Skagabraut fyrir íbúðahúsnæði.

Sótt hefur verið við lóð við Skagabraut 26 undir einbýlishús og þá er einnig óskað eftir lóð utar á Skagabrautinni fyrir hús með einni til tveimur íbúðum.

Skipulags- og bygginganefnd tekur vel í erindin og hefur falið skipulagsfulltrúa að afla nánari gagna.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024