Fréttir

  • Útför Ragnars Arnar í dag
  • Útför Ragnars Arnar í dag
Miðvikudagur 4. maí 2016 kl. 17:39

Útför Ragnars Arnar í dag

Útför Ragnars Arnar Péturssonar, fyrrverandi íþróttafulltrúa Reykjanesbæjar, var gerð frá Keflavíkurkirkju í dag. Ragnar Örn lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 29. apríl sl. eftir skammvinna baráttu við krabbamein.

Ragnar Örn starfaði sem íþróttafulltrúi Reykjanesbæjar í nær 20 ár. Hann var ötull þátttakandi í íþróttastarfi Reykjanesbæjar og átti sæti í íþróttaráði Keflavíkur frá 1986 til 1998. Hann var formaður Íþróttabandalags Keflavíkur frá árinu 1994 til 1998. Ragnar Örn var varabæjarfulltrúi fyrir Sjálstæðisflokkinn í Keflavík frá 1990 til 1994 og starfaði fram til dánardags fyrir Sjálstæðisflokkinn í Keflavík og var formaður Fulltrúaráðs flokksins. Ragnar Örn var formaður Starfsmannafélags Suðurnesja í 14 ár frá 1999 til 2013 og sat þau ár einnig í stjórn BSRB. Ragnar Örn var virkur meðlimur Kiwanis-hreyfingarinnar og gegndi þar fjölmörgum trúnaðarstörfum, þar á meðal var hann umdæmisstjóri hreyfingarinnar á Íslandi og í Færeyjum frá árinu 2011 til 2012 og sat í Evrópustjórn þann tíma.

Ragnar Örn lætur eftir sig eiginkonu og fjögur uppkomin börn og 10 barnabörn.


Við úför Ragnars Arnar Péturssonar voru það synir, tengdasynir og vinir Ragnars sem báru kistuna úr kirkju.

 
Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi


 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024