Útför heiðursborgara Garðs kl. 14
Sólveig Sigrún Oddsdóttir fæddist í Móhúsum í Garði, 11.október 1916. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi 30. janúar síðastliðinn. Útför Sigrúnar verður gerð frá Útskálakirkju í dag kl. 14. Aðstaða og útsending frá athöfninni verður í íþróttahúsinu fyrir þá sem ekki rúmast í kirkjunni.
Sigrún bjó fyrstu æviárin í Móhúsum en fluttist svo með foreldrum sínum að Presthúsum þar sem hún bjó þar til þau Hjálmar hófu búskap á Nýjalandi. Þar bjó hún öll sín æviár að undanskildum síðustu rúmum sjö árum sem hún dvaldi á hjúkrunarheimilinu Garðvangi. Sigrún var fyrst og fremst mikil húsmóðir og hélt með mikilli natni og reglusemi utan um heimili sitt og fjölskyldu. En hún lét sig málefni sveitarfélagsins mikið varða og sat í hreppsnefnd í tólf ár, oftast sem ritari. Einnig var hún formaður fegrunar- og umhverfisnefndar um árabil og hafði mikil áhrif á fegrun byggðarlagsins. Sigrún var gerð að heiðursborgara Gerðahrepps árið 2001. Félags-, menningar- og forvarnarmál voru henni mjög hugleikin. Hún var gæslumaður barnastúkunnar Siðsemdar í þrjátíu ár og starfaði innan Stórstúku Íslands, formaður Kvenfélagsins Gefnar í tuttugu og eitt ár, starfaði í Slysavarnadeild kvenna í Garði, hún söng með kirkjukór Útskálakirkju í 40 ár og starfaði í sóknarnefnd um árabil auk þess sem hún sá um þrif og búnað kirkjunnar. Sigrún var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2002 fyrir störf sín að bindindis- og félagsmálum.