Heilsuvika
Heilsuvika

Fréttir

Útboð í Njarðvíkurskógum en íbúasamráð í Höfnum
Fimmtudagur 27. ágúst 2026 kl. 09:58

Útboð í Njarðvíkurskógum en íbúasamráð í Höfnum

Uppbygging tjaldstæða í Reykjanesbæ

Skipulagsráð Reykjanesbæjar fjallaði um tvö erindi varðandi tjaldstæði í sveitarfélaginu á síðasta fundi sínum. Niðurstöður ráðsins voru ólíkar eftir svæðum, en grænt ljós var gefið á áframhaldandi undirbúning í Njarðvíkurskógum á meðan áform í Höfnum kalla á nánara samráð.

Tjaldstæði í Njarðvíkurskógum

Óskað var eftir heimild til að bjóða út uppbyggingu og rekstur á tjaldsvæði í Njarðvíkurskógum. Um er að ræða 1,8 hektara afþreyingar- og þjónustusvæði (reit AF4 í aðalskipulagi) sem staðsett er í næsta nágrenni við íþrótta- og útivistarsvæði bæjarins.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Skipulagsráð samþykkti erindið fyrir sitt leyti og veitti heimild til að hafist verði handa við að vinna tillögu að deiliskipulagi fyrir tjaldsvæðið.

Áform í Höfnum bíða endurskoðunar aðalskipulags

Ráð tók einnig fyrir endurtekið erindi frá Sveini Enok Jóhannssyni, sem óskaði eftir afnotum af landi í eigu Reykjanesbæjar undir tjaldstæði fyrir ferðavagna í Höfnum.

Fyrirhuguð uppbygging á svæðinu krefst breytinga á aðalskipulagi Hafna. Skipulagsráð benti á að slík breyting þyrfti að vinnast í samráði við íbúa svæðisins og vísaði nánari úrvinnslu málsins til heildarendurskoðunar á aðalskipulagi sveitarfélagsins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn