Reykjanesbær 3-6 sept
Reykjanesbær 3-6 sept

Fréttir

Utanvegaakstur stöðvaður
Sunnudagur 28. október 2007 kl. 09:09

Utanvegaakstur stöðvaður

Lögreglan á Suðurnesjum var í gær með sérstakt eftirlit með akstri utan vega. Fjórir voru kærðir fyrir utanvegaakstur við Grindavík. Auk þess urðu lögreglumenn varir við nokkur torfæruhjól við Sandvík á Reykjanesi en ekki tókst að hafa hendur í hári þeirra sem þar voru á ferð.

Einn ökumaður var stöðvaður vegna meintrar ölvunar við akstur.

Mynd: Talsvert hefur verið um utanvegaakstur á Reykjanesi með tilheyrandi raski og náttúruspjöllum. Fjórir fá kæru vegna þessa eftir gærdaginn.
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25