Utanlandsferð frestað vegna ölvunar
Þrír ökumenn voru stöðvaðir af Lögreglunni á Suðurnesjum í gær vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Þá var ölvaður maður handtekinn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gær þar sem hann svaf áfengissvefni. Hann hafði verið á leið af landinu en sú för verður að bíða a.m.k. uns maðurinn hefur sofið úr sér í fangaklefa.
Einn gisti fangageymslu í nótt grunaður um þjófnað og tilraun til innbrots í verslun í Reykjanesbæ.
Þá voru tveir ökumenn stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur.