HSS
HSS

Fréttir

Utankjörfundur hafinn hjá Sýslumanni
Föstudagur 7. október 2016 kl. 09:25

Utankjörfundur hafinn hjá Sýslumanni

- Einnig hægt að kjósa í Garði og Sandgerði

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninganna sem fram eiga að fara 29. október 2016 er hafin hjá sýslumanninum á Suðurnesjum. Opið er alla virka daga á skrifstofum embættisins að Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ frá klukkan 8:30 til 19:00 og Víkurbraut 25 í Grindavík frá klukkan 8:30 til 13:00 til að byrja með.

Vakin er athygli á þeirri nýbreytni að nú er einnig hægt að greiða atkvæði utan kjörfundar á opnunartíma á skrifstofu sveitarfélagsins Garðs og hjá Sandgerðisbæ.

Bílakjarninn
Bílakjarninn