Utankjörfundaratkvæðagreiðslu frestað
Þar sem forsætisráðuneytið hefur ekki enn tilkynnt með lögformlegum hætti hvaða tiltekna dag kosningar til Alþingis eigi að fara fram er nauðsynlegt að draga til baka áður útgefna tilkynningu um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar hjá Sýslumanninum í Keflavík. Þetta kemur fram í tilkynningu sem embættið sendi frá sér í morgun.
„Með auglýsingu í Víkurfréttum fimmtudaginn 26. febrúar sl. var tilkynnt að utankjörfundaratkvæðagreiðslan myndi hefjast í dag mánudaginn 2. mars, en af því getur ekki orðið. Engin utankjörfundaratkvæðagreiðsla getur hafist fyrr en búið verður að rjúfa þing og kjördagurinn auglýstur formlega. Ef ekki verður gerð breyting á stjórnarskránni á næstu dögum getur utankjörfundaratkvæðagreiðslan ekki hafist fyrr en í fyrsta lagi 12. mars, sbr. 20. gr. stjórnarskrárinnar um 45 daga áskilnaðinn,“ segir ennfremur í tilkynningunni.