Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hafin
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninganna sem fram eiga að fara 31. maí 2014 er hafin hjá sýslumanninum í Keflavík. Opið er alla virka daga á skrifstofum embættisins Vatnsnesvegi 33, Reykjanesbæ kl. 8:30-15:00 og Víkurbraut 25 í Grindavík kl. 8:30-13:00 til að byrja með. Nánar auglýst í Víkurfréttum.