Bygg
Bygg

Fréttir

Útafakstur vegna hálku
Þriðjudagur 2. maí 2006 kl. 08:29

Útafakstur vegna hálku

Lögreglunni í Keflavík var á fimmta tímanum í nótt tilkynnt um útafakstur á Reykjanesbraut. Ökumaður hafði misst stjórn á bifreið sinni í hálku og hafnað utan vegar skammt austan við Grindavíkurafleggjara. Tveir voru í bifreiðinni og meiddust lítið. Bifreiðin var flutt burtu með kranabifreið.
Bílakjarninn
Bílakjarninn