HSS
HSS

Fréttir

Úrkomulítið í dag
Þriðjudagur 6. júlí 2010 kl. 09:40

Úrkomulítið í dag

Austan 5-10 og skýjað en úrkomulítið, en norðaustan 8-13 í kvöld og norðan 15-20 norðantil á morgun. Hiti 10 til 18 stig, segir í veðurspá Veðurstofu Íslands fyrir Faxaflóa í dag.


Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Austan 5-10 m/s í dag. Skýjað að mestu og úrkomulítið, en norðaustan 8-13 í kvöld og á morgun. Hiti 10 til 15 stig.


Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:
Norðan 8-13 V-lands, en hægari annars staðar. Rigning á N- og A-landi, en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hiti 6 til 17 stig, hlýjast SV-lands, en svalast við N-ströndina.

Á föstudag og laugardag:
Norðlæg eða breytileg átt og rigning með köflum eða skúrir. Hiti svipaður.

Á sunnudag og mánudag:
Breytileg átt og stöku skúrir. Hiti 8 til 15 stig.

Mynd: Svona er spáin hjá yr.no fyrir Suðurnes í dag og næstu daga.