Sjómannakveðjur 3
Sjómannakveðjur 3

Fréttir

Úr skuldum í jafnvægi og kærleiksmáltíð á Þakkagjörðarhátíð
Miðvikudagur 26. nóvember 2008 kl. 17:34

Úr skuldum í jafnvægi og kærleiksmáltíð á Þakkagjörðarhátíð


-Fyrirlestraröð í Garði og Sandgerði fyrir fjölskyldur og einstaklinga á erfiðum tímum.
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Næstkomandi fimmtudagskvöld verður fimmti fyrirlesturinn haldinn sem kirkjan í Garði og Sandgerði heldur í samvinnu við Sveitarfélagið Garð, Sandgerðisbæ og MSS. Þar sem tekin eru  fyrir brýn mál er tengjast fjölskyldum og einstaklingum á erfiðum tímum í íslensku samfélagi. Erindin fjalla um fjármál, hvernig hægt er að drýgja matinn, um samskiptin á heimlinu og hvernig við getum styrkt og hlúð að hverju öðru á erfiðum tímum. – Að þessu sinni býður söfnuðurinn öllum sem fyrirlesturinn sækja upp á máltíð í tilefni af Þakkargjörðarhátíðinni.

Næsti fyrirlestur verður fimmtudaginn  27. nóvember kl. 19 í safnaðarheimilinu í Sandgerði, sem hefst með mat og síðan mun Garðar Björgvinsson fjármálaráðgjafi flytja fyrirlestur er ber yfirskriftina „Úr skuldum í jafnvægi“. Fyrirlesturinn er ætlaður fjölskyldum og einstaklinum sem hafa hug á að endurskipuleggja fjárhaginn. Fyrirlesturinn byggist á hugmyndafræðinni: Leiðin til velgengni. Þar sem fjallað er um hvað hver og einn þarf að tileinka sér í hugsun og hegðun til að fjármál séu í lagi. Fjallað er um hvernig bágri stöðu er komið í jafnvægi og hvernig vaxa má þaðan. Fjallað eru um helstu hindranir og vinnuaðferðir til að ná árangri.


Fyrirlestrarnir hafa verið haldnir til skiptis í Garði og Sandgerði. Hver fyrirlestur hefst á stuttri helgistund. Fyrirlestrarnir eru öllum opnir að kostnaðarlausu.

Ljósmynd af 245.is