Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Uppvakningar Reykjanesbæjar besta stuttmyndin
Thelma Hrund Hermannsdóttir
Thelma Hrund Hermannsdóttir skrifar
föstudaginn 30. desember 2022 kl. 11:02

Uppvakningar Reykjanesbæjar besta stuttmyndin

Nemendur í 9. bekk Akurskóla báru sigur úr býtum í stuttmyndasamkeppni grunnskóla Reykjanesbæjar í tengslum við lestrarupplifunina Skólaslit 2: Dauð viðvörun. Nemendum á unglingastigi bauðst að taka þátt í keppninni og tóku þrír skólar þátt að þessu sinni en nemendur Akurskóla, Holtaskóla og Háaleitisskóla sendu inn stuttmyndir.

Nemendur nýttu nóvembermánuð til að vinna myndirnar, skrifa handrit, skipuleggja tökur og framkvæmd. Keppnin fór fram þann 12. desember síðastliðinn í stóra sal Sambíóanna í Keflavík fyrir fullum sal af nemendum sem skemmtu sér konunglega enda myndirnar frábærar, vel gerðar og skemmtilegar. Kynnar hátíðarinnar voru þau Betsý Ásta Stefánsdóttir og Daníel Örn Gunnarsson. Dómnefndina skipuðu fulltrúar frá Fjörheimum og tilkynnti Ólafur Bergur Ólafsson, formaður dómnefndar, úrslitin. Þær Sóley Guðjónsdóttir, Alexandra Rós Þorkelsdóttir, Julia Blasik og Thelma Lind Kolbeinsdóttir, úr 9. bekk Akurskóla, stóðu uppi sem sigurvegarar keppninnar með myndina Uppvakningar Reykjanesbæjar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024