Bygg
Bygg

Fréttir

Föstudagur 11. janúar 2002 kl. 12:03

Uppstilling á lista sjálfstæðismanna-Árni Sigfússon leiðir listann

Á fundi Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ í gærkvöldi, var einróma samþykkt að Árni Sigfússon leiði lista sjálfstæðismanna fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar og verði jafnframt bæjarstjóraefni sjálfstæðismanna.Nær 100 manns sátu fundinn og var hann einn sá fjölmennasti sem haldinn hefur verið hjá fulltrúaráðinu í Reykjanesbæ.

Á fundinum kom m.a. fram að þeir Þorsteinn Erlingsson og Böðvar Jónsson gefa kost á sér til áframhaldandi bæjarfulltrúastarfa auk Steinþórs Jónssonar sem hefur verið fyrsti varabæjarfulltrúi. Jafnframt var samþykkt að viðhafa uppstillingu við annað val á framboðslistann og var uppstillingarnefnd kjörin á fundinum. Hún mun leggja tillögur sínar fyrir fulltrúaráðið 4. mars n.k.

„Okkur hefur verið tekið mjög vel og það hefur haft stórann þátt í þessari ákvörðun fjölskyldunnar að flytja til Reykjanesbæjar. Fólk hefur hringt í okkur og sent okkur netpóst og boðið okkur velkomin í bæjarfélagið og að mínu mati er það einstakt að svona vel sé tekið á móti manni. Auðvitað sýnist sitt hverjum um þetta mál en við hjónin höfum fundið mikinn stuðning" , sagði Árni Sigfússon við blaðamann eftir að endanlega varð ljóst að hann myndi leiða listann. Árni segir að eiginkona sín, Bryndís Guðmundsdóttir, sem er menntaður talmeinafræðingur sé að starfa á varnarsvæði hersins tvo daga í viku og því sé þetta ekki alger breyting fyrir hana.

Árni segir börn sín vera ánægð með ákvörðunina að flytja í Reykjanesbæ. Aldís, elsta dóttir þeirra hjóna býr í London um þessar mundir en tveir drengir í grunnskóla flytja með þeim í Reykjanesbæ og að sjálfsögðu pop-stjarnan unga, Védís Hervör Árnadóttir, sem er að gera það gott með nýju plötuna sína þessa dagana.

Árni segir að hann vænti þess að taka þátt í að byggja upp mjög öflugt samfélag í Reykjanesbæ. „Ég sé sveitafélag með mikið land, góðar hafnir, orku úr iðrum jarðar og sem þar að auki umlykur nánast alþjóðaflugvöll. Ég vil taka þátt í að efla þennan bæ enn frekar og byggja hér upp enn öflugra samfélag", sagði Árni Sigfússon að lokum.




Bílakjarninn
Bílakjarninn