Bygg
Bygg

Fréttir

Miðvikudagur 17. október 2001 kl. 09:44

Uppsagnir há Toppnum ehf.

Öllum starfsmönnum Toppsins hefur verið sagt upp störfum vegna verkefnaskorts, en það stendur til að endurráða flesta starfsmenn á næstu dögum þegar verkefnastaða er ljós.
„Okkur hefur aldrei áður skort verkefni en ástæðan er sú að við erum að ljúka þremur stórum verkefnum núna, og þeim lýkur öllum á sama tíma. Við gerðum tilboð í endurgerð Stafnesvegar og áttum lægsta tilboð og gerðum því ráð fyrir að fá það verk. Sandgerðisbær samdi hins vegar við ÍAV um verkið sem átti þriðja lægsta tilboð“, segir Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Toppsins ehf.
Hvers vegna fenguð þið ekki verkið ef ykkar tilboð var lægst?
„Við höfum ekki fengið skrifleg svör frá Sandgerðisbæ ennþá en ég veit að við uppfylltum öll skilyrði“, segir Vilhjálmur Þór.
Boðað var til starfsmannafundar fyrir helgi þar sem starfsmönnum var gerð grein fyrir stöðunni, en að sögn Vilhjálms stendur til að endurráða sem flesta. „Við vildum gera starfsmönnum okkar grein fyrir stöðunni og koma hreint fram. Óánægja þeirra á meðal er ekki til staðar því menn skilja þá stöðu sem komin er upp“, segir Vilhjálmur.
Starfsmenn fengu launin sín ekki að fullu greidd sl. föstudag. Vilhjálmur segir að þau muni verða greidd út í þessari viku en þetta er í fyrsta sinn sem launagreiðslur bregðast þar sem greiðsla frá stóru verki kom ekki á réttum tíma.
Bílakjarninn
Bílakjarninn