Uppsagnarbréfin afhent eftir helgi
Allir íslenskir starfsmenn Varnarliðsins, 592 talsins, fá afhent uppsagnarbréf í núna eftir helgi. Sjö verkalýðsfélög ætla í samstarfi við Reykjanesbæ að bjóða þeim upp á margvíslega aðstoð í atvinnuleit. Starfsmenn Varnarliðsins geta sótt uppsagnarbréf sín á mánudag, en ósótt bréf verða sett í póst í lok dags.
Verkalýðsfélögin sjö, Reykjanesbær og Mannafl ætla að opna þjónustumiðstöð fyrir þá sem sagt verður upp. Auk ráðningaþjónustu og námskeið í gerð ferilskrár, verður boðið upp á áfallahjálp og aðstoð hjá vinnusálfræðingi.
Mynd: Starfsmenn af Keflavíkurflugvelli á fundi með Árna Sigfússyni, bæjarstjóra Reykjanesbæjar, í síðustu viku. VF-mynd: Ellert Grétarsson.